|
| Teikningar sumarhúsa er okkar sérfag |
| Teiknivangur mætir fjölbreyttum þörfum þeirra viðskiptavina sem vilja byggja sumarhús. Í boði eru ýmsar gerðir teikninga, annarsvegar af stöðluðum lausnum sem hafa sannað gildi sitt og hinsvegar sérhönnuðum sumarhúsum í takt við séróskir viðskiptavina. Frekari upplýsingar fást í síma 568 1317 eða á teiknistofunni að Lyngási 11 í Garðabæ. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið teiknivangur@teiknivangur.is |
| Saga Teiknivangs |
| Teiknivangur var stofnaður árið 1979 og hafa teikningar sumarhúsa verið í sífelldri þróun síðan. Fjöldi sumarhúsa hafa verið byggð eftir teikningum frá Teiknivangi, ár hvert, í flestum sveitarfélögum landsins. |
|
|
| TEIKNIVANGUR býður upp á: |
| • Staðlaðar teikningar húsa, með eða án svefnlofts og kjallara |
| • Teikningar sérhannaðra húsa |
| • Teikningar af breytingum á núverandi húsum, viðbyggingum, geymsluskúrum og gesthúsum |
| TEIKNIVANGUR er í samstarfi við fagaðila sem geta veitt viðskiptavinum alla aðra þjónustu við byggingu sumarhúss, allt frá því teikning er keypt og fram að fullbúnu sumarhúsi. |
|
|
|